Samantekt um þingmál

Tollalög

9. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að Ísland sýni stuðning sinn við Úkraínu í verki og geri nauðsynlegar breytingar á lögum í þeim tilgangi að greiða fyrir viðskiptum á þeim erfiðu tímum sem ríkið gengur í gegnum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að tollar verði tímabundið felldir niður af vörum sem fluttar eru til Íslands og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu. Samkvæmt fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Úkraínu eru tollar nú þegar felldir niður af iðnaðarvörum og sjávarafurðum. Niðurfelling tolla samkvæmt frumvarpinu á fyrst og fremst við um landbúnaðarafurðir. Lagt er til að niðurfellingin gildi til og með 31. maí 2023.

Breytingar á lögum og tengd mál

Tollalög, nr. 88/2005.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 26.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.